Fyrst skrifað 20. júní 2021 og birt á nokkrum vefsíðum.
Uppfært þann 30. júní 2022:
Þann 14. apríl 2022 barst tölvupóstur um að leki væri kominn að íbúð 303 og íbúð 203 sem eru beint fyrir neðan svalirnar.
Haustið 2019 var verktakafyrirtækið Múrtak ehf. ráðið af stjórn húsfélagsins að Helluvaði 1-5 í Reykjavík. Eignarekstur ehf. útvegaði verktakann sem um ræðir til þess að gera við múrskemmdir á handriðsveggjum á svölum 4. hæðar. Þeirri vinnu var ekki lokið með fullnægjandi hætti miðað við hefðbundnar vinnuaðferðir reyndra fagmanna á þessu sviði.
Þar komu í ljós gallar sem ekki er hægt að hrekja. Þarna var verið að stytta sér leið sem eru vinnusvik. Það er augljóslega ekki hægt að mæla með þessum múrverktaka.
Íbúðareigandi sem þarf að horfa upp á skemmdirnar sendi beiðni um úrbætur til húsfélagsins vorið (3.maí 2020). Ekki hefur enn verið brugðist við þessu árið 2025 og málið orðið stjórnendum húsfélagsins til skammar enda komið á stig vanrækslu.
Hér má sjá fjölmargar myndir og myndband af vinnulaginu hjá Múrtak ehf. en múrarinn sem þarna var að verki heitir Trausti Ragnar Einarsson sem er einnig skráður sem kennari í Tækniskólanum.
Tengill á Myndasafn um Múrtak og vinnubrögðin hjá þeim
Múrtak ehf í fyrirtækjaskrá RSK